Paradorm

Parasetamól/dífenhýdramínhýdróklóðrið
500 mg/25 mg

  • Paradorm er notað til þess að slá hratt og áhrifaríkt á verki og sársauka sem tengjast kvefi og flensu, höfuðverki, bakverki, gigtar- og vöðvaverki, tíðaverki og tannpínu sem valda erfiðleikum við svefn.

  • Paradorm inniheldur parasetamól sem er verkjalyf (verkjalyf sem léttir á verkjum og hrolli) og hitalækkandi (það dregur úr líkamshita þegar þú ert með hita).

  • Paradorm inniheldur dífenhýdramínhýdróklóríð, andhistamín sem veldur syfju eða svefnhöfga sem kemur að gagni þegar verkir halda fyrir þér vöku.

  • Paradorm er fáanlegt í 4, 10, og 12 taflna þynnupakkningum. Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

  • Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

Verkjastillandi fyrir svefn

Parapró

Íbúprófen og parasetamól
200/500 mg

  • Lyfið inniheldur tvö virk innihaldsefni, íbúprófen og parasetamól. Íbúprófen tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru bólgueyðandi gigtarlyf. Þau draga úr verkjum, bólgum og hita. Parasetamól er verkjalyf sem hefur annan verkunarhátt en íbúprófen og er verkjastillandi og hitalækkandi.

  • Parapró er notað tímabundið við vægum eða meðalmiklum verkjum sem tengjast mígreni, höfuðverk, bakverk, tíðaverk, tannverk, lið- og vöðvaverkjum, vægri liðagigt og kvef- og flensueinkennum, særindum í hálsi og hita.

  • Þynnupakkning með 4 eða 20 filmuhúðuðum töflum. Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

  • Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

Verkjastillandi og bólgueyðandi

Acare ehf. er samheitalyfjafyrirtæki sem býður uppá fjölda samheitalyfja fyrir Íslenska heilbrigðismarkaðinn. Helsti samstarfsaðili Acare er sænska samheitalyfjafyrirtækið Medical Valley sem sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu samheitalyfja í Skandinaviu. Í samstarfi við Medical Valley munu koma á markað á Íslandi mikill fjöldi nýrra samheitalyfja sem bætir val sjúklinga á lyfjum og eykur samkeppni á Íslandi.

Helstu viðskiptavinir Acare ehf eru apótek, sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir. Markmið Acare ehf er að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt hágæða samheitalyf á samkeppnishæfum verðum.

Acare